Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 23. október 2026
Ábyrgðaraðili: Neðri Hóll Hugmyndahús, sem rekur Pizzadeig.is og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á vefnum. Fyrirspurnir sendist á thorarinnhjalmarsson@gmail.com.
1. Hvaða gögn söfnum við?
Ef þú skráir þig inn með Google geymum við nafn, netfang og prófílmynd, ásamt umsögnum og uppskriftum sem þú sendir inn. Ef þú samþykkir vefkökur safnar Google Analytics upplýsingum um notkun vefsins (sjá 5. lið).
2. Hvernig notum við gögnin?
Gögnin eru notuð til að veita þér aðgang að síðunni, sýna notendaprófíla og, ef þú samþykkir vefkökur, til að sjá hvernig vefurinn er notaður svo hægt sé að bæta hann. Vefurinn sendir ekki út fréttabréf.
3. Þjónustuaðilar
Við notum Firebase (Google) fyrir innskráningu og gagnagrunn, Vercel til hýsingar, Google Maps fyrir kort á síðum pizzustaða og Google Analytics til vefmælinga (aðeins ef þú samþykkir). Google Analytics og Google Maps eru þjónusta Google, og gögn geta farið til Bandaríkjanna. Auglýsingar eru sóttar frá Birtingi. Við biðjum um auglýsingar án persónusniðinnar miðunar og sendum Birtingi engar persónuupplýsingar, en Birtingur fær IP-tölu og vafraupplýsingar þegar auglýsing er sótt og birting talin.
4. Réttur þinn
Þú getur hvenær sem er óskað eftir að fá upplýsingar um þau gögn sem við höfum um þig, eða beðið um að þeim sé eytt. Hafðu samband á thorarinnhjalmarsson@gmail.com. Þú getur líka sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
5. Vefkökur
Vefurinn notar eina nauðsynlega vefköku til að muna tungumálaval þitt. Innskráning er geymd í vafranum þínum, ekki í vefköku. Google Analytics setur vefkökur (_ga) aðeins ef þú samþykkir þær í borðanum sem birtist þar til þú hefur valið, og grundvöllur þeirrar vinnslu er samþykki þitt. Ef þú hafnar setur Google Analytics engar vefkökur. Val þitt er geymt í vafranum þínum og þú getur breytt því hvenær sem er.